þriðjudagur, 20. ágúst 2013

Hreinskilni og heiðarleiki

Í dag heyrði ég lag í útvarpinu sem ég hef ekki heyrt lengi og það fékk mig aðeins til að hugsa. Lagið heitir Honesty og er eftir Billy Joel. 

Hugurinn fór bókstaflega á flug þegar ég heyrði lagið... Er heiðarleiki ofmetinn?

Einhvernvegin gerir maður ráð fyrir því að þegar maður talar við annað fólk, að maður fái hreinskilin svör sem eru byggð á heiðarleika. En oftar en ekki, þá fær maður svör sem byggð eru á óheiðarleika og eru þar af leiðandi einfaldlega lygi. Það sem fór svona mest fram í þessum hugsunum mínum var; af hverju lýgur fólk? Er það til að vernda hina manneskjuna frá því að verða særð? Er það af því að maður skammast sín fyrir sannleikann? Er það kannski einfaldlega vegna þess að fólk er ekki nógu miklar manneskjur til að koma hreint fram við hvort annað? Er það af því að maður þorir ekki að taka afleiðingunum sem sannleikurinn getur haft með sér? Er þetta kannski bara orðinn vani?
Sama hvað ég reyni að svara þessum spurningum, þá kemst ég ekki að neinni niðurstöðu. Kannski svarið við þessum spurningum sé líka lygi.

Ég hef eftir minni bestu getu reynt að vera heiðarleg manneskja þó það komi auðvitað fyrir að ég sé það ekki, bara svona eins og hver annar maður í þessum heimi. Í flestum tilfellum þá finnst mér best að segja sannleikann, sama hvernig annað fólk tekur því. Mér sjálfri finnst betra að vinna úr bláköldum sannleikanum eins og hann er, í staðin fyrir að reyna að vinna úr einhverri lygi sem magnast upp og svo á endanum þegar allt er komið í ringulreið, þá fær maður blauta tusku í andlitið og þarf þá að fara að jafna sig eftir það.

Þetta er mér hulin ráðgáta. Og þar sem ég hef legið andvaka í næstum því alla nótt (já og klukkan er að verða 7 að morgni til), datt mér í hug að skrifa þessar hugsanir niður í staðin fyrir að brenna heilanum út við að reyna að finna svör við þessu, burt séð frá því hvort einhver nenni að lesa þetta bull mitt :)

- Ragnheiður

Engin ummæli:

Skrifa ummæli