Hvergiland er staður þar sem draumarnir rætast. Allar áhyggjur þurrkast upp, allt drasl breytir um mynd, vonbrigði verður að gleði, öllum spurningum er svarað, hið óútreiknanlega gengur upp, allt óhugsandi verður hugsanlegt, það sem er óljóst lýsist upp, óöryggi verður öryggi, öll mistök gleymast og eftirsjá verður fyrirsjá. Kvíðinn umbreytist í hamingju, hávaðinn lognast út og á endanum ríkir dauðaþögn. Ég er minn eigin ,,herra" og ekkert skiptir máli nema ég, á þessum stað, á þessum tíma.
Mikið sem það væri ljúft að geta komist á svona stað svona endrum og eins. En ég lifi í raunveruleikanum og árið er 2013 svo ég held að staður sem þessi sé einhver óskhyggja. En þó svo að ég komist ekki til Hvergilands, ætla ég samt að taka mér nokkra sæludaga, breyta um umhverfi og fara norður á Akureyri í komandi viku. Nýnemadagar í skólanum hefjast á fimmtudaginn og svo tekur skólagangan við í framhaldinu. Ég ætla að eyða tímanum hjá Kristínu Þóru vinkonu minni og ég býst ekki við öðru en að dvöl mín fyrir norðan komist í líkingu við Hvergilandið. Við ætlum til að mynda að fara í berjamó, skoða bæjarlífið og svo er ætlunin hjá mér að skoða jólahúsið, fá mér Brynju-ís og meira til! Tilhlökkunin er orðin svo mikil að ég er strax farin að skipuleggja hvernig ég ætla að skipuleggja listann þar sem ég skrifa allt niður sem ég tek með mér. Svo er ég farin að hugsa út í lög sem ég ætla að hlusta á á leiðinni, hvar ég ætla að stoppa til að taka myndir, hvar ég ætla að borða og ég veit ekki hvað og hvað. Ég er aðeins að fara fram úr sjálfri mér þar sem ég fer ekki fyrr en á miðvikudaginn. EN maður er aldrei of vel undirbúinn eða of vel skipulagður (jú kannski stundum og þá sérstaklega ég).
Draumóra-ég er hætt í bili
-Ragnheiður
Engin ummæli:
Skrifa ummæli